Nautgriparækt > Kynbótastöð Suðurlands >
Kynbótastöð Suðurlands
Þorleifskot
|
 Röðull S 226
|
 Árangur kúasæðinga á Suðurlandi |
Kynbótastöð Suðurlands hóf starfsemi sína 1. janúar 1958. Keypt voru reynd og góð naut víða um héraðið og sætt með fersku sæði. Þátttaka meðal bænda varð strax mjög góð og fljótlega voru flestir bændur að Jökulsá á Sólheimasandi orðnir félagsmenn. Síðast komu bændur austan sands eða árið 1970. Farið var að djúpfrysta nautasæði 1972 en árið 1978 var sæðistöku hætt en gengið til samstarfs við Nautastöð Bændasamtaka Íslands sem þá var á Hvanneyri. Vorið 2009 flutti Nautastöð BÍ starfsemi sína í nýja nautastöð að Hesti og þar fer öll sæðistaka og dreifing nautasæðis á landinu fram.
Þátttaka í sæðingum er mjög góð og yfir 95% sunnlenskra kúa er sæddar. Árið 2007 voru 9.871 kýr sæddar fyrstu sæðingu á Suðurlandi. Fangprósenta árið 2007 (mæld sem kýr sem ekki koma til endursæðinga 60 dögum eftir fyrstu sæðingu) var 69,1%. Við Kynbótastöð Suðurlands starfa 5 fastráðnir frjótæknar sem allir hafa fengið þjálfun í fangskoðunum og auk þess sinnir héraðsdýralæknirinn á Klaustri sæðingum fyrir austan sand að Álftaveri undanskildu.
Auk þessa býður Kynbótastöðin upp á klaufskurð og hefur til þess sérhannaðan klaufskurðarbás og þjálfaða menn.
Sæðingagjöld eru kr. 1.200 á kú. Ekki er innheimt fyrir sæðingar á kvígum. Jafnframt fær Kynbótastöðin framlög af kynbóta- og þróunarfé samnings um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu. Fyrir holdasæðingar er innheimt kr. 600 aukalega á sæðingu með Angus og Limousine-sæði en kr. 1.000 aukalega á sæðingu með Galloway-sæði.
Kynbótastöð Suðurlands
Austurvegi 1 - 800 Selfoss
Kennitala: 660774-0179
VSK-nr.: 01716