Áhugavert

Tenglar

 Prokaria
 Worldfengur
Hrossarækt > DNA-greining >

DNA-greining

Búnaðarsamband Suðurlands býður upp á DNA-sýnatöku úr hrossum til staðfestingar á ætterni. Sýnatakan er unnini af Búnaðarsambandinu en greining sýnanna er á vegum líftæknifyrirtækisins Matís ohf/Prokaria. Niðurstöður DNA-greininganna eru síðan lesnar inn í Worldfeng að lokinni greiningu.

Mælt er með því að láta DNA-greina kynbótahross til staðfestingar á ætterni þeirra.

Tekið er við pöntunum hjá Búnaðarsambandi Suðurlands í síma 480-1800, einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin halla@bssl.is og petur@bssl.is.

Sýnataka fer þannig fram að tekið er stroksýni úr nös sem er einföld og örugg aðferð. Einungis eru tekin sýni úr einstaklingsmerktum hrossum, þ.e. ör- eða frostmerktum.

Gjaldskráin er eftirfarandi:
Tímagjald fyrir sýnatöku og frágang: 6.000 kr/klst + vsk
Komugjald: 2.300 + vsk
Greining á sýni: 6.200 kr + vsk
Forgangssýni (tekur 10 daga): 18.000 kr + vsk

Hross fædd frá og með árinu 2007 fá ekki A-vottun án DNA-greiningar til sönnunar á ætterni.

Prenta þessa síðu