Áhugavert

Tenglar

Allar fréttir > Fréttir HS >

Fréttir HS

27.3.2012 11:12
Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í Ölfushöllinni
Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 7. apríl 2012 í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í tengslum við Stóðhestaveislu Hrossaræktar.is. Fyrirkomulag ungfolasýningarinnar verður með svipuðu sniði og í fyrra. Starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og hreyfingu. Sköpulagsmat hefst kl. 13:00 en sýningin kl. 15:30. Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan einnig álitlegasta folann í hverjum flokki. Efstu dómaravöldu folarnir úr hvorum flokki munu koma fram á stóðhestaveislu Hrossaræktar.is um kvöldið. Rétt til þátttöku eiga folar fæddir árið 2009 og 2010.

Lesa meira...
27.3.2012 09:37
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður á morgun, miðvikudagskvöld 28. mars kl. 20:30 í Hliðskjálf félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi. Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Úr stjórn eiga að ganga Ólafur Einarsson en hann gefur ekki kost á sér áfram og Sigrík Jónsson en hann gefur kost á sér áfram. Gestur fundarins verður að þessu sinni Guðmar Þór Pétursson en hann hefur lengi unnið að markaðsmálum í Ameríku.

Lesa meira...
7.3.2012 15:00
Gunnarsholtsstemmningin endurvakin
Takið laugardaginn 28. apríl frá!
Í tengslum við útgáfu stóðhestablaðs Eiðfaxa mun Eiðfaxi ásamt hestamannafélaginu Sleipni standa fyrir stóðhestadegi að Brávöllum á Selfossi laugaradaginn 28. apríl nk.
Allir þeir hestar sem eru með í stóðhestablaði Eiðfaxa eiga rétt á þátttöku á hátíðinni en þar mun fara fram kynning á ungum sem eldri stóðhestum á beinni braut, í anda sýninga stóðhestastöðvarinnar Gunnarsholts forðum. Einnig verður boðið upp á afkvæmahópa og ræktunarbússsýningar.

Lesa meira...
29.2.2012 10:20
Hrossarækt og hestamennska
Almennir fundir um málefni hrossaræktar og hestamennsku verða haldnir á eftirtöldum stöðum á næstu vikum. Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.

Lesa meira...
14.2.2012 09:08
Fundur um nýtt sýningarform kynbótahrossa á komandi landsmóti
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands boðar til fundar 15. febrúar 2012 kl. 20:00 í Ölfushöllinni um nýtt sýningarform kynbótahrossa á komandi landsmóti.
Efni fundarins er ákvörðun fagráðs um nýja útfærslu á kynbótasýningum á landsmóti 2012. Eins og kunnugt er ákvað fagráð á desemberfundi sínum að ferðum í dómi verði fækkað úr 10 ferðum í 8 og í stað hefðbundinnar yfirlitssýningar færi yfirlitssýning að mestu fram á hringvelli, þ.e riðnir þrír hringir og ein ferð á beinni braut.

Lesa meira...
7.2.2012 15:01
Hrossaræktarfélag Hrunamanna 100 ára
Málþing, ljósmyndasýning og afmælishátíð
Laugardaginn 11. febrúar 2012 verður haldið upp á afmæli HRFH með tvennum hætti, kl. 14:00 verður málþing í félagsheimilinu á Flúðum og um kvöldið verður mikil hátíð með veislumat að hætti Hótels Flúða. Einnig verður sett upp ljósmyndasýning í Félagsheimilinu.
Á málþingið koma þeir Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, og Gunnar Arnarson, hrossaræktandi með meiru í Auðsholtshjáleigu. Allir sem áhuga hafa á hrossarækt eru hvattir til að koma og hlusta á fróðleg erindi. Frítt er inn á málþingið og kaffiveitingar í boði Hrossaræktarfélagsins.
Afmælishátíðin hefst svo kl. 20:30 en húsið opnar kl. 20:00 með fordrykk í boði Líflands.

Lesa meira...
19.1.2012 09:36
Frá uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi
Laugardaginn 14.janúar s.l. var haldin sameiginleg uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi en þar eru starfandi þrjú hrossaræktarfélög, í fyrrum Villingaholts-, Gaulverjabæjar- og Hraungerðishreppum.
Anton Páll Níelsson hélt mjög fróðlegt erindi þar sem farið var vítt og breytt yfir ýmsa þætti hrossaræktar og reiðmennsku.
Hvert hrossaræktarfélag veitti svo verðlaun fyrir sitt félag og að síðustu voru veitt verðlaun fyrir efstu hross í öllum félögunum.

Lesa meira...
13.1.2012 08:49
Fræðslukvöld. Hvað er reiðmennska?
Hrossaræktarsamtök Suðurlands standa fyrir fræðslukvöldi þriðjudaginn 17. janúar kl. 20:00 í félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis, Hliðskjálf, Suðurtröð á Selfossi (hesthúsahverfinu).
Að þessu sinni ætlar Benedikt Líndal tamningameistari að vera með spjallkvöld undir yfirskriftinni „Hvað er reiðmennska?“ Er hægt að flokka hana niður? Stefnum við í rétta átt? Getum við gert eitthvað öðruvísi? Er í lagi með þann útbúnað sem er notaður? Hvað með viðhorf okkar til árangurs ofl. skemmtilegt og umhugsunarvert.

Lesa meira...
11.1.2012 13:28
Hestadómarinn!
Gæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH, í samstarfi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn.

Nám þetta er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi íþrótta- og gæðingadómara og fólk sem hyggst gerast dómarar en getur einnig nýst víðum hópi áhugasamra hestamanna. Námskeiðið er tilvalið fyrir starfandi dómara til að dýpka þekkingu sína á hestinum og eflast í sínum störfum. Þeir sem hafa hug á að ná sér í dómararéttindi seinna meir fá þarna góðan grunn. Ræktendur fá innsýn í hvað og hvernig hestar eru metnir og einnig er gott að öðlast þekkingu á dómstörfum til að geta metið sína eigin hesta eða aðstoðað keppnisknapa. Þannig á þetta námskeið á að nýtast breytum hópi fólks.

Lesa meira...
20.12.2011 08:26
Landsmót 2014 verður á Gaddstaðaflötum
Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur ákveðið að Landsmót 2014 verði á Gaddstaðaflötum við Hellu og 2016 verði það á Vindheimamelum í Skagafirði.

Lesa meira...
Eldri fréttir

Prenta þessa síðu